Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Skógardagurinn mikli 2026

20. júní 2026

11:00 til 16:00

Mörkinni Hallormsstað

Í ár verður bryddað upp á þeirri nýbreytni á Skógardeginum mikla í Hallormsstaðaskógi að halda frisbígolfmót á vellinum sem er að finna steinsnar frá hátíðarsvæðinu. Raunar hefst dagurinn á þessu móti og er mótið í umsjón áhugafólks um frisbígolf á Héraði

Skógardagurinn mikli er fjölskylduhátíð sem haldin er í Mörkinni á Hallormsstað um Jónsmessuleytið á hverju ári. Bændur á Austurlandi taka virkan þátt í hátíðinni, bæði skógarbændur, nautgripabændur og sauðfjárbændur. Gestir fá að smakka á austfirskum landbúnaðarafurðum og á fjölbreyttri dagskrá eru leikir, skemmtiatriði, tónlist og fleira. Skógartengdir leikir, þrautir og handverk er ómissandi þáttur í hátíðinni þar sem börnin fá að tálga, mála á tré, klifra í trjám og margt fleira.

Hápunktur dagsins er ávallt Íslandsmeistaramótið í skógarhöggi þar sem reynt skógarhögg etur kappi hvert við annað með keðjusög og fleiri verkfæri að vopni. Forkeppnin hefst klukkan tólf utan við sjálft hátíðarsvæðið en lokagreinin fer þó fram á hátíðarsvæðinu og verður vafalaust spennandi í ár eins og endranær. Raunar má segja að þarna sé keppt í skógaríþróttum. Þar er tæknin mikilvægasta atriðið. Keppendur sýna listir sínar og nákvæmni með keðjusög og öxi þar sem þeir saga meðal annars skífur og kljúfa egg í tvennt. Vegleg verðlaun eru í boði frá heildversluninni MHG.

Á sviðinu í Mörkinni verða svo tónlistaratriði þar sem austfirskt tónlistarfólk kemur fram, ekki síst ungt listafólk, meðal annars úr hópi nemenda Menntaskólans á Egilsstöðum.

Síðast en ekki síst verður að nefna matinn sem áður var minnst á. Grillaðar verða pylsur í stórum stíl en nautgripabændur heilgrilla líka naut eins og hefð er fyrir á hátíðinni og sauðfjárbændur bjóða upp á grillað lambakjöt. Auðvitað verður svo ketilkaffi í boði að skógarmanna sið ásamt skógarlummunum

Skógardagurinn mikli er samstarfsverkefni fjölmargra aðila eystra. Starfstöð Lands og skógar á Hallormsstað leggur drjúgan skerf til dagsins ásamt Félagi skógarbænda á Austurlandi, Félagi nautgripabænda og Félagi sauðfjárbænda