Rætur framtíðar 2026
15. ágúst - 16. ágúst 2026
10:00 til 17:00
Hvanneyri,
311 Borgarbyggð

Rætur framtíðar er yfirskrift málþings sem fram fer á Hvanneyri 15. og 16. ágúst og fjallar um matvælaöryggi í samhengi við landnotkun á Íslandi. Þingið er opið almenningi og þar koma saman hagaðilar til að ýta undir samtal háskólanna, fyrirtækja og almennra borgara um málefni sem snerta matvælaöryggi og landnotkun á Íslandi og í öðrum löndum. Tekið verður á ýmsum málefnum, allt frá fjölbreytni sveppa og svepparækt upp í samþætta fiskirækt og vatnsrækt (aquaponics) en líka fræðslu um sjálfbærni. Samtalið hefst klukkan tíu laugardaginn 15. ágúst og lýkur um kl. 17 á sunnudag. Smellið hér til að sjá fólkið sem fræðir og tekur þátt í samtalinu.
Hlýnun loftslags í heiminum og röskun á aðfangakeðjum landa í milli hefur afdrifaríkar afleiðingar hér á Íslandi. Til að tryggja matvælaöryggi verður að taka á því hversu háð við erum innfluttum matvælum. Sérstaklega er áhugavert að fjölga þeim aðferðum sem eru notaðar við matvælaframleiðslu, svo sem með því að nýta betur þang úr sjó eða auka svepparækt.
Líftækniaðferðir við vinnslu á lífrænum úrgangi má nýta til að framleiða eldsneyti fyrir landsmenn eða hráefni til iðnaðar um leið og þær geta stuðlað að því að bæta hringrás næringarefna í vistkerfum þar sem unnið er að því að byggja upp gróðurlendi á röskuðu landi þannig að draga megi úr þörfinni fyrir innfluttan tilbúinn áburð.
Á leiðinni að sjálfbærni skiptir sköpum að litið sé á heilbrigð vistkerfi sem forsendu fyrir framleiðni í landbúnaði. Nýskógrækt og endurheimt vistkerfa getur verið landbúnaðinum til framdráttar og slík verkefni þurfa ekki að vera kvaðir sem eingöngu eiga að vera til að bæta fyrir eitthvað annað.
Stuðla má að þrótti og seiglu samfélaga með því að hugsa virðiskeðjur í matvælaframleiðslu upp á nýtt og virkja betur heimafólk og hagaðila. Með þessu er líklegra að þessi starfsemi geti betur brugðist við þegar óvænt áföll verða sem afkastamiðuð starfsemi ræður síður við.
Samræða við bændur sem hafa tileinkað sér aðferðir sem notið hafa hylli í öðrum löndum og eru byggðar á fræðilegum grunni getur hjálpað fólki að finna út hvað sé vænlegt á Íslandi og hvað síður. Ef miðlað er reynslu og sagt frá því sem vel hefur gengið og því sem gengið hefur miður getur það sparað tíma og fyrirhöfn þeim sem eru að fóta sig áfram.
Hugmyndin með Rótum framtíðar er að búa til vettvang fyrir bæði sérfræðinga og almenning til að koma saman og viðra hugmyndir sínar, mynda tengsl og efna til samstarfs. Þar verður samræðan og þar verða til sambönd sem stuðlað geta að betra matvælaöryggi á Íslandi í framtíðinni.
