Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Ræktun berja og ávaxta í skóglendi

26. september 2025

Endurmenntun græna geirans hjá Garðyrkjuskólanum FSU stendur fyrir námskeiði 26.-27. september fyrir áhugafólk um ræktun berjarunna og ávaxtatrjáa, bæði til nytja og yndis. Skráningu lýkur 23. september.

Námskeiðið er hluti af námskeiðaröðinni Grænni skógar II.

Fjallað verður um:

  • Helstu tegundir berjarunna og ávaxtatrjáa sem geta þrifist í skjóli íslenskra skóga og aukið þar líffjölbreytni.

  • Aðferðir við útplöntun með tilliti til uppskeru og almennra þrifa plantnanna.

  • Staðsetningu þeirra með tilliti til jarðvegs, næringar, klippingar og annarrar umhirðu.

Helstu tegundir sem teknar verða fyrir:

  • Rifsættkvíslin

  • Reynitegundir

  • Hlíðaramall

  • Rósir

  • Jarðarber

  • Hindber

  • Epla-, plómu- og perutré

Fjallað verður um helstu meindýr og sjúkdóma í ræktuninni og varnaraðgerðir gegn þeim. Rætt verður um næringarinnihald berja og ávaxta og önnur efni sem þessar afurðir geta innihaldið. Farið verður yfir uppskeru og nýtingu afurðanna með tilliti til varðveislu næringarefna.

Kennari: Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).

Tími: Fös. 26. sept. kl. 16-19 og lau. 27. sept. kl. 9-16 hjá Garðyrkjuskólanum á Reykjum.

Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is

Skráningarfrestur er til 23. september.

Verð: 34.900 kr. (kennsla, hádegismatur og gögn innifalin í verði).