Námskeið um undirbúning lands til skógræktar
29. mars 2025
kl. 10:00 til 16:00
Hvanneyri

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands heldur námskeið á Hvanneyri 29. mars um undirbúning lands til skógræktar. Valdimar Reynisson skógfræðingur kennir.
Á námskeiðinu verður fjallað um mismunandi landgerðir og helstu eiginleika þeirra, svo sem frjósemi, rakastig, tegundaval og hvaða jarðvinnsluaðferðir henta í mismunandi landgerðir.
Fjallað er um undirbúning lands til skógræktar með tilliti til ólíkra aðstæðna og hvaða möguleikar eru til staðar, hver er tilgangurinn, mögulegur ávinningur og kostir og gallar.
Kynntir verða mismunandi þættir í undirbúningi lands til skógræktar, svo sem uppgræðsla, hvenær þarf að græða upp, mismunandi uppgræðsluaðferðir og áburðargjöf.
Jarðvinnsla og mismunandi jarðvinnsluaðferðir eru kynntar, farið ítarlega í hverja aðferð fyrir sig þar sem kostir og gallar eru metnir.
Einnig er fjallað um slóðagerð, hvað þarf að hafa í huga við lagningu slóða og mismunandi aðferðir kynntar.
Farið verður í vettvangsferð á jörð í nágrenninu þar sem hægt verður að skoða að minnsta kosti tvær tegundir jarðvinnslu. Því er mikilvægt að klæðast eftir veðri.
Kennari er Valdimar Reynisson, skógfræðingur og fyrrverandi skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni. Valdimar er með langa reynslu í skógrækt. Hann lauk námi frá Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1990 af námsbrautinni Skógur og umhverfi, BS-gráðu í skógfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2007 og meistaraprófi í skógarstjórnun (forest management) frá SLU í Svíþjóð 2011. Hann hefur starfað við allt sem við kemur skógrækt, sem vélamaður, skógarhöggsmaður, verkstjóri, skógarvörður, verktaki og skógræktarráðgjafi.
Staður: Hjá LBHÍ á Hvanneyri og í nærliggjandi skógi.
Tími: 29. mars kl. 10-16
Verð: 39.000 kr. Innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffiveitingar
Skráning á námskeið er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.– Vakin er athygli á að hægt er að sækja styrk hjá stéttarfélögum fyrir námskeiði eða námi
Upplýsingar um greiðsluskilmála og greiðslukjör