Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Námskeið um trjá- og runnaklippingar fyrir fagfólk

17. febrúar - 18. febrúar 2026

09:00 til 12:00

Garðyrkjuskólinn,

Hveragerði

Garðyrkjuskólinn - FSu býður í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur upp á endurmenntunarnámskeið 17.-18. febrúar ætlað öllum garðyrkjufræðingum sem vilja bæta þekkingu sína á klippingu trjáa og runna, rifja upp og læra nýjar aðferðir við klippingu. Skráningu lýkur 11. febrúar.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Á námskeiðinu verður fjallað um aðferðir við trjá- og runnaklippingar, bæði nýjar og gamlar. Einnig verður fjallað um lífsstarfsemi trjáa og muninn á heilbrigði þeirra í náttúrulegu umhverfi og borgarumhverfi. Hvernig bregst gróður við áreiti svo sem klippingum og hvernig er hægt að lágmarka skaða þegar tré eru snyrt? Fjallað verður um trjáklippingar og hvernig meta skal ástand trjágróðurs. Hvernig á að meta ástand trjáa áður en þau eru klippt svo hægt sé að gera sér grein fyrir því hvaða inngrip hentar hverju þeirra? Hvenær á að klippa og hvenær ekki? Einnig verður farið yfir hvaða klippingu mismunandi tegundir þurfa s.s. eðalrósir, klifurplöntur, skriðular plöntur ofl. Verklegar æfingar í mati á trjám og klippingum, auk þess sem farið verður lauslega í nauðsynlegt viðhald verkfæra.

Nemendur taki með sér verkfæri og vinnufatnað í verklega tíma í samræmi við veður.

  • Kennari: Ágústa Erlingsdóttir skrúðgarðyrkjumeistari, fv. brautarstjóri skrúðgarðyrkjubrautar hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).

  • Tími: Þri. 17. feb kl. 9–16 og mið. 18. feb. kl. 9-12 hjá Garðyrkjuskólanum á Reykjum, Ölfusi.

  • Verð: 49.000 kr. (Kaffi, hádegismatur og gögn innifalin í verði).

  • Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is

Skráning til 11. febrúar.