Forvarnir gegn gróðureldum - Námskeið hjá Endurmenntun græna geirans
10. apríl 2025
kl. 09:00 til 12:10
Garðyrkjuskólanum Reykjum,
816 Ölfusi

Endurmenntun græna geirans hjá Garðyrkjuskólanum - FSu heldur námskeið fimmtudaginn 10. apríl um forvarnir gegn gróðureldum. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Brunavarnir Árnessýslu, Land og skóg og Verkís. Skráningarfrestur er til 31. mars.
Námskeiðið er öllum opið og hentar sérstaklega bændum, skógareigendum, sumarhúsaeigendum og öðrum sem eiga eða sýsla með land þar sem eldur getur brunnið og ógnað verðmætum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
Lög og reglur sem gilda um brunavarnir á skógarsvæðum og í sumarbústaðalöndum.
Vefinn gróðureldar.is.
Skipulag skóga og ræktaðra svæða með tilliti til brunavarna.
Varnarsvæði og gróður á slíkum svæðum.
Mikilvægi vega og slóða á ræktuðum svæðum.
Gott aðgengi að vatni.
Spurt verður:
Er trjágróður miseldfimur?
Hvað töpum við miklu kolefni ef hann brennur?
Er hægt að tryggja tré eða skóg?
Hvaða búnaður og aðferðir nýtast við að ráða niðurlögum gróðurelda?
Hvar er næsta slökkvilið og hvaða búnað hefur það?
Eru öll slökkvilið útbúin með sama hætti?
Hver eru fyrstu viðbrögð við gróðureldum og hvað þarf að vera til staðar í sumarhúsinu eða á svæðinu?
Skiptir máli hvers konar gróður er næst mannvirkjum?
Kennsla: Dóra Hjálmarsdóttir Verkís, Hreinn Óskarsson Landi og skógi, Pétur Pétursson Brunavörnum Árnessýslu og Björgvin Örn Eggersson Garðyrkjuskólanum.
Tími: Fimmtudagurinn 10. apríl kl. 9-12.10
Staður: Garðyrkjuskólinn á Reykjum, Ölfusi
Verð: 14.600 (kaffi og gögn innifalin)
Skráningarfrestur: 31. mars