Námskeið um endurheimt votlendis
23. september - 24. september 2026
09:00 til 17:00
Hvanneyri,
311 Borgarbyggð

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður tveggja daga námskeið dagana 23. og 24. september um endurheimt votlendis, mikilvægi votlendisvistkerfa og faglegar aðferðir við skipulagningu, framkvæmd, eftirfylgni og árangursmat endurheimtarverkefna.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Land og skóg og Mýralíf/Peatland Lifeline. Það er byggt á faglegri þekkingu og reynslu af endurheimt votlendis hérlendis. Þátttakendur fá yfirsýn á hlutverk mýra í náttúrunni í samhengi við líffræðilega fjölbreytni, vatnsbúskap, loftslagsmál, vistkerfisþjónustu og fleira.
Námskeiðið felst í fyrirlestrum, umræðum, verkefnavinnu og vettvangsvinnu. Það hentar öllum sem skipuleggja, veita ráðgjöf, framkvæma, meta eða fylgja eftir verkefnum á sviði endurheimtar votlendis. Hluti námsins fer fram í nágrenni skólans þar sem þátttakendur fá hagnýta þjálfun í greiningu, kortlagningu og mati á votlendissvæðum.
Námsmat – Námið er metið til 1 ECTS-einingar á háskólastigi.
Hvar og hvenær – Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri í Borgarfirði og í nærliggjandi umhverfi miðvikudaginn 23. september og fimmtudaginn 24. september kl. 9-17 báða daga.
Verð – 50.000 kr. (sérfræðikennsla, hádegisverður og kaffiveitingar fyrir og eftir hádegi báða kennsludagana)
