Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Námskeið um áhættumat trjáa

20. apríl 2026

09:00 til 15:00

Garðyrkjuskólanum á Reykjum,

Ölfusi

Aaron Shearer, sérfræðingur hjá Landi og skógi, leiðbeinir á námskeiði um áhættumat trjáa sem haldið verður í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi 20. mars 2026. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vinna við trjáklippingar, ráðgjöf, framkvæmdir í og við græn svæði og önnur störf tengd umhirðu trjágróðurs. Skráningu lýkur 16. mars.

Með hlýnandi veðri og hækkandi trjágróðri í þéttbýli er orðið mikilvægt að geta lagt mat á ástand trjáa og möguleg hættumerki.

Námskeiðið hefst á bóklegri yfirferð þar sem farið verður ítarlega yfir helstu kvilla í trjám, varnarviðbrögð þeirra og heilbrigði. Einnig verður fjallað um hvernig meta má möglega hættu sem stafar af trjám með það fyrir augum að koma í veg fyrir skaða á fólki eða eignum. Varnarviðbrögð trjáa verða skoðuð og hvernig trén bregðast við áreiti, skaða og klippingum.

Seinni hluti námskeiðsins er verklegur þar sem tré verða skoðuð með tilliti til áhættumats. Nemendur læra að nota mismunandi matsaðferðir, muninn á ítarlegu áhættumati og sjónrænu mati á ástandi trjáa auk þess að skipuleggja inngrip í takt við niðurstöður matsins.

Þetta dagsnámskeið hentar öllum þeim sem vinna við trjáklippingar, ráðgjöf, framkvæmdir í og við græn svæði og önnur störf tengd umhirðu trjágróðurs. Námskeiðið fer fram á ensku, túlkað eftir þörfum.

  • Kennsla: Aaron Shearer, sérfræðingur hjá Landi og skógi (MArborA MSc).

  • Tími: 20. mars kl. 9-15 hjá Garðyrkjuskólanum á Reykjum, Ölfusi.

  • Verð: 35.000 kr. (Hádegismatur og námsefni innifalið í verði).

  • Skráning: gardyrkjuskolinn@fsu.is

Skráningu lýkur 16. mars