Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Málþing um mikilvægi moldar

4. júní 2026

16:00 til 17:30

Sæmundargötu 11,

101 Reykjavík

Hvers virði er heilbrigður jarðvegur í raun? Hvaða líf leynist í moldinni undir fótum okkar? Og hvernig getum við snúið við þróuninni og komið betur fram við þessa mögnuðu en takmörkuðu auðlind?

Á málþinginu sem haldið verður 4. júní kl. 16 í Norræna húsinu í Reykjavík verður kafað ofan í leyndan heim moldarinnar og leitað að svörum við mikilvægum spurningum um moldina. Auk þess verður gefin nasasjón af sýningunni „Himnar“ sem verður formlega opnuð í Norræna húsinu 6. júní – og hverfist einmitt um mold. Gestir munu einnig geta tekið með sér heim bréfpoka með moltu úr glænýrri jarðgerðarvél HÍ.

DAGSKRÁ

Erindi flytja:

  • Thomas Crowther, vistfræðingur og prófessor við ETH Zurich. Hann leiðir Crowther Lab, stofnaði Restor-vettvanginn fyrir endurheimt vistkerfa og situr í ráðgjafaráði fyrir áratug Sameinuðu þjóðanna um endurheimt vistkerfa.

  • Kristín Sigurðardóttir, slysa-og bráðalæknir, með heildræna sýn á heilsu sem hefur alla tíð sem sinnt heilsueflingu, forvörnum og kennslu. Hún kennir við Læknadeild HÍ, Háskólann í Reykjavík og situr í Lýðheilsuráði Læknafélags Íslands.

Pallborðsumræður:

  • Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir

  • Ólafur Arnalds, prófessor emeritus í jarðvegsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands

  • Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur

Fundarstjóri: Katrín Oddsdóttir

Léttar veitingar og drykkir verða í boði.

ATH: Fyrstu 20 gestirnir fá nýjustu bók Thomas Crowther, Nature's Echo: Harnessing Ancient Feedback Loops to Heal a Changing Planet, að gjöf! En bókin kemur einmitt út sama dag og málþingið er haldið.

Málþingið er skipulagt af Norræna húsinu, Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands, Landvernd, Náttúruverndarsamtökum Íslands , Ungum umhverfissinnum, Landi og skógi, GRÓ LTR, ALDIN gegn loftslagsvá, Á heildina litið og Garðyrkjufélagi Íslands. Það fer fram á íslensku og ensku.+

Viðburðurinn á Facebook

Um málþingið á vef Norræna hússins