Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Kynning á árangri Landgræðsluskóla GRÓ

7. maí 2026

12:00 til 13:15

Þjóðminjasafnið, Suðurgötu,

Reykjavík

Árangurinn af starfi Landgræðsluskóla GRÓ verður til umfjöllunar á viðburði sem haldinn verður á Þjóðminjasafninu 7. maí kl. 12-13.15. Yfirskrift viðburðarins er „Frá þekkingu til þróunaráhrifa: Endurheimt vistkerfa og sjálfbær landnýting“.

Fyrrverandi og núverandi nemendur skólans segja frá því hvernig þekkingaruppbygging á sviði landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar nýtist þróunarríkjum sem glíma við afleiðingar hnignunar vistkerfa og loftslagsbreytinga.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir flytur ávarp og Dr Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, býður gesti velkomna. Nánari dagskrá má finna á síðu viðburðarins og í auglýsingunni hér að neðan.

Vakin er athygli á þessu einstaka tækifæri til þess að kynnast framkvæmd íslenskrar þróunarsamvinnu og heyra af árangri af starfi GRÓ-skólanna. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi utanríkisráðuneytisins, GRÓ—Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, Landgræðsluskóla GRÓ og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Áður hefur kastljósinu verið beint að starfi hinna GRÓ-skólanna sem starfa á sviði jafnréttis, jarðhita og sjávarútvegs.

Facebook-viðburður / Skráning á viðburð