Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Kjóstu um handhafa Hvatningarverðlauna skógræktar 2026

6. mars 2026

Hvatningarverðlaun skógræktar verða veitt þriðja sinni á alþjóðlegum degi skóga 21. mars næstkomandi. Kosning er nú í gangi.

Kjósa má um þrjár tilnefningar til verðlaunanna fram til 6. mars. Verðlaunin eru veitt árlega til að hvetja einstaklinga, hópa, fyrirtæki, félög eða stofnanir sem vinna óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi til frekari dáða á þessu sviði.

Að verðlaununum standa Skógræktarfélag Íslands, Land og skógur og Bændasamtök Íslands.

Kosningar standa nú yfir milli þriggja sem dómnefnd hefur valið úr hópi tilnefndra sem eru:

  • Björgvin Örn Eggertsson
    Björgvin er námsbrautarstjóri í Garðyrkjuskólanum FSu. Hann hefur starfað við skógrækt alla sína starfsævi, er virkur í fjölbreyttu námskeiðahaldi og ötull við að miðla af reynslu sinni og þekkingu, auk þess að koma að fjölda samstarfsverkefna sem hafa aukið þekkingu innan skógargeirans.

  • Eiður Eyþórsson
    Eiður er skógræktunarstjóri hjá Sólheimum í Grímsnesi, við gróðrarstöðina Ölur. Undir umsjón hans hefur gróðrarstöðin eflst og lagt meira til samfélags Sólheima. Ræktun trjáa hefur einnig stóraukist undir umsjón Eiðs, svo sem í gegnum verkefnið Tré fyrir tré á Sólheimum.

  • Guðmundur H. Gunnarsson
    Guðmundur hefur ræktað upp Skjaldarstaðaskóg í Öxnadal, sem er vel hirtur bændaskógur. Mikil vinna hefur verið lögð í umhirðu, meðal annars tvítoppaklippingu, grisjun og slóðagerð. Skógurinn er af mörgun talinn einn af best hirtu bændaskógum landsins.

Taktu þátt í kosningunni!

Smelltu hér til að kjósa