Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Trjáfellingar og grisjun með keðjusög - Vöglum Fnjóskadal

17. apríl 2026

09:00 til 16:00

Vöglum í Fnjóskadal

Garðyrkjuskólinn - FSu býður upp á námskeið í trjáfellingum og meðferð keðjusagar dagana 17. til 19. apríl að Vöglum í Fnjóskadal. Hámarksfjöldi þátttakenda er tíu og skráningarfrestur til 7. maí.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

  • Fyrsti dagurinn er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir:

    • Fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu.

    • Leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli.

    • Val á trjám til fellingar.

    • Grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða.

  • Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar:

    • Keðjusög tekin í sundur.

    • Einföld bilanaleit í söginni og hefðbundið viðhald.

    • Þrif sagar.

    • Brýning keðju.

  • Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm eru beðnir að taka búnað sinn með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnaðinn lánaðan á námskeiðinu.

Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).

  • Tími: (3x)
    - Föstudagur 17. apríl kl. 9 til 17.30
    - Laugardagur 18. apríl kl. 9 til 17.30
    - Sunnudagur 19. apríl kl. 9 til 16

  • Staður. Starfstöð Lands og skógar á Vöglum Fnjóskadal (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til einnar einingar af námi í garðyrkjufræðum.

  • Verð: 84.900 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).

  • Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is

  • Skráningarfrestur er til 8. apríl.