Trjáfellingar og grisjun með keðjusög - Hólar í Hjaltadal
16. maí 2025
kl. 09:00 til 17:30
Hólar í Hjaltadal,
551 Sauðárkróki

Garðyrkjuskólinn - FSu býður upp á námskeið í trjáfellingum og meðferð keðjusagar dagana 16. til 18. maí að Hólum í Hjaltadal. Hámarksfjöldi þátttakenda er tíu og skráningarfrestur til 7. maí.
Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.
Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir:
Fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu.
Leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli.
Val á trjám til fellingar.
Grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða.
Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar:
Keðjusög tekin í sundur.
Einföld bilanaleit í söginni og hefðbundið viðhald.
Þrif sagar.
Brýning keðju.
Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.
Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm eru beðnir að taka búnað sinn með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnaðinn lánaðan á námskeiðinu.
Kennari: Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).
Tími: (3x)
- Fös. 16. okt. kl. 9-17.30.
- Lau. 17. okt. kl. 9-17.30.
- . 20. okt. kl. 9-16.Staður: Hólar í Hjaltadal (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til einnar einingar af námi í garðyrkjufræðum.
Verð: 79.000 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).
Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is.
Skráningarfrestur er til 7. maí.