Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

HÍ og heimsmarkmiðin - áskoranir í náttúruvernd á Íslandi

5. febrúar 2025

kl. 12:00 til 13:30

Sæmundargötu 2 Aðalbygging H. Í.,

102 Reykjavík

Heimsmarkmið 15 um líf á landi verður í brennidepli á viðburði Háskóla Íslands og Sjálfbærnistofnunar skólans 5. febrúar kl. 12-13.30. Þar verður fjallað um náttúruvernd og mikilvægi þess að vernda og endurheimta vistkerfi og sporna við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni.

Þetta er liður í viðburðaröð HÍ í samvinnu við Sjálfbærnistofnun HÍ um brýnustu verkefni og áskoranir sem þjóðir heims standa frammi fyrir. Viðburðaröðin er haldin í samstarfi við forsætisráðuneytið. Miðvikudaginn 5. febrúar verður rætt um áskoranir í náttúruvernd á Íslandi. Fundurinn hefst klukkan tólf í hátíðarsal Háskóla Íslands og stendur til hálftvö. Boðið er upp á kaffiveitingar eftir viðburðinn. Aðgangur er ókeypis.

Dagskrá

  • Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, opnar viðburðinn.

  • Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, flytur erindið „Áskoranir í náttúruvernd á Íslandi og á heimsvísu.

  • Pallborð: Bryndís Marteinsdóttir, sviðstjóri sjálfbærrar landnýtingar hjá Landi og skógi, Skúli Skúlason, prófessor við Háskólann á Hólum, sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands og formaður stjórnar BIODICE, Stefán Gíslason, umhverfisráðgjafi, stofnandi og eigandi UMÍS ehf. Environice. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ,

Fundarstjóri verður Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ.

Viðburðurinn á Facebook

Nánar um viðburðaröðina

Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa samþykkt að innleiða sautján heimsmarkmið sem takast á við stærstu verkefni samtímans. Mikilvægt er að sérfræðiþekking og rannsóknir nýtist til lausnar á þeim viðamiklu verkefnum sem heimsmarkmiðin lýsa og einfaldi samfélögum að takast á við víðtækar áskoranir. Eitt heimsmarkmið er tekið fyrir í hverri viðburðalotu þar sem öflugum fræðimönnum, frá öllum fræðasviðum Háskóla Íslands, verður teflt fram til að kryfja og ræða markmiðin, vandamálin og áskoranirnar sem þeim tengjast frá sem flestum hliðum. Háskóli Íslands einsetur sér að þekkingarsköpun og rannsóknir við skólann hafi víðtæk áhrif. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Þau fela í sér fimm meginþemu sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf.

Nánari upplýsingar um fyrri viðburði í viðburðarröðinni má finna á https://www.hi.is/haskolinn/haskolinn_og_heimsmarkmidin

Hlaðvarp

Nýtt hlaðvarp, HÍ og heimsmarkmiðin, er komið út samhliða viðburðaröðinni. Hægt er að hlusta hér: https://soundcloud.com/sjalfbaernistofnun-hi