Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Hægfara þræðir – siðræna hliðin á tísku umfram útlit

5. júní 2026

12:30 til 14:45

Vefmálþing

UNECE, efnahagsráð Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu, efnir til málþings á vefnum í samstarfi við bandalag Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra tísku, United Nations Alliance for Sustainable Fashion. Tilefnið er alþjóðlegur dagur umhverfisins sem er 5. júní. Ræddar verða loftslagsaðgerðir sem stuðla að meiri sjálfbærni í klæðisiðnaði, hvort sem það er fatnaður, áklæði, gluggatjöld eða önnur klæðis- eða textílframleiðsla.

Á fundinum talar meðal annars formaður Slow Fiber sem eru samtök ítalskra framleiðenda í fata- og húsgagnaiðnaði sem vilja stuðla að aukinni sjálfbærni í þessum greinum með notkun á sjálfbærum efnum sem spunninn er úr þráður til vefnaðar og klæða.

Fundurinn hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma og stendur til klukkan 14.45.

Nánari upplýsingar er að finna á vef viðburðarins en þátttaka er öllum heimil.

Skráning