Grisjunarnámskeið á Hvanneyri
10. apríl - 12. apríl 2026
Bæta við í dagatal

Skógfræðingarnir Benjamín Örn Davíðsson og Valdimar Reynisson kenna á námskeiði um grisjun skóga sem Endurmenntun LbhÍ stendur fyrir dagana 10. til 12. apríl. Bókleg kennsla fer fram á Hvanneyri en verkleg á skógræktarsvæði Skógræktarfélagsins Fossár í Hvalfirði.
Benjamín Örn og Valdimar hafa báðir áralanga reynslu af grisjun og trjáfellingum. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komin í meðferð keðjusaga og vilja efla færni sína í grisjun og trjáfellingum.
