Fyrsti viðburðurinn í röð um loftslag og rannsóknir
6. mars 2026
13:00 til 15:00
Auðarsalur, Veröld,
Háskóla Íslands
Öllum er velkomið að sækja nýja viðburðaröð við Háskóla Íslands sem ætlað er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Sérstök áhersla er lögð á samtal milli vísindafólks, sem og á milli fræðasamfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs og almennings.
Fyrsti viðburðurinn fer fram föstudaginn 6. mars kl. 13–15 í Auðarsal í Veröld, HÍ.
Einnig verður streymt frá viðburðinum: https://vimeo.com/event/5767623
Efnisatriði sem fjallað verður um eru:
Hugmyndin um loftslagssetur
Loftslagsbreytingar á Íslandi, nokkrar afleiðingar, þekkingargöt og rannsóknaþörf
Loftslagsbreytingar, líffræðileg fjölbreytni og landvistkerfi
Ímyndunarafl gegn loftslagsvá? Um framsýni, samfélagsleg gildi og sjálfsmyndir
Í kjölfarið verða pallborðsumræður
