Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Fræðslufundur um birkikynbætur

25. febrúar 2025

19:30

Borgartúni 19,

105 Reykjavík

Kvenrekill á rauðblaða birki. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur ríður á vaðið 25. febrúar í þriggja fræðslufunda röð sem Skógræktarfélag Íslands stendur fyrir. Yfirskriftin á erindi Þorsteins er Framandi og ágengt birki í íslenskri náttúru - pælingar, kynbætur og árangur. Fundurinn verður í salarkynnum Arion banka að Borgartúni 19 í Reykjavík kl. 19.30.

Þorsteinn Tómasson hefur í áratugi unnið að plöntukynbótum í þágu landbúnaðar, skógræktar og garðyrkju. Hann hefur eftir farsæla starfsævi unnið í sjálfboðavinnu að kynbótum á íslensku ilmbjörkinni undir yrkisheitunum Embla og Kofoed en hefur auk þess víxlað við aðrar birkitegundir frá norðurslóðum og þróað vaxtarmikil yrki, m.a. undir heitunum Hekla og Dumba. Þorsteinn er heiðursfélagi Skógræktarfélags Íslands, orðuhafi hinnar íslensku fálkaorðu og var um árabil forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins.

Nánar um fræðslufundaröð Skógræktarfélags Íslands á www.skog.is.