Erindi um vistfræði og nytjar lenjuskóga Patagóníu
19. maí 2026
09:00
Keldnaholt

Fjallað verður um vistfræði og stjórnun lenjuskóga (Nothofagus) í Suður-Patagóníu, meðal annars í tengslum við timburnytjar og beitarstjórnun skóga (silvopastoral systems), á fundi sem haldinn verður þriðjudaginn 19. maí kl. 9 í salnum Nautaflötum á Keldnaholti í Reykjavík.
Á fundinum flytur argentínski prófessorinn dr Pablo Luis Peri flytur erindi um rannsóknir sínar í Suður-Patagóníu Fundinum verður einnig steymt á Teams.
Pablo Luis Peri er prófessor við ríkisháskólann UNPA í Suður-Patagóníu (Universidad Nacional de la Patagonia Austral), aðalrannsakandi við landbúnaðartæknistofnunina INTA (Instituto Nacional de Tecnología Agropecuaria) og rannsakandi hjá CONICET sem er þjóðarráð um vísindarannsóknir og tækniþróun (Consejo Nacional de Investigaciones Científicas y Técnicas ).
Fundurinn er öllum opinn.
