Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Framkvæmdastjórn

Efnisyfirlit

Forstjóri og framkvæmdastjórn

Hlutverk framkvæmdastjórnar er að sjá til að Heilbrigðisstofnun Suðurlands sinni skyldum sínum varðandi sjúklinga og skjólstæðinga á sem bestan hátt innan þess fjárhagsramma sem stofnuninni er settur og vinna að því að markmiðum um starfsemi sé náð.

Forstjóri ber ábyrgð á því að tryggja að á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sé veitt eins góð heilbrigðisþjónusta og framast er unnt. Forstjóri skal vinna að því að heilbrigðisstofnunin reki hlutverk sitt í hvívetna hvað snertir þjónustu, kennslu og rannsóknir.

Ingibjörg, Sigurður, Díana, Baldvina, Margrét

Ingibjörg mannauðsstjóri, Sigurður framkvæmdastjóri lækninga, Díana forstjóri, Baldvina Ýr framkvæmdastjóri hjúkrunar, Margrét Björk fjármálastjóri


Díana Óskarsdóttir, forstjóri

Forstjóri er skipaður af heilbrigðisráðherra til fimm ára í senn og starfar samkvæmt erindisbréfi þar sem lýst er stöðu hans sem embættismanns, hlutverki hans og helstu verkefnum.

Díana Óskarsdóttir tók við starfi forstjóra Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands 1. október 2019 og var endurskipuð haustið 2025.

Stjórnendur

Skipurit