Tilnefning til Nýsköpunarverðlauna
20. maí 2026
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hlaut tilnefningu til nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026

Verkefni um innleiðingu gervigreindar til skimunar á augnsjúkdómi í sykursýki hefur verið tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026 í flokknum „Ráðuneyti / A-hluta stofnun / Opinbert hlutafélag“. Tilnefningin er veitt fyrir framúrskarandi framlag til umbóta í opinberri þjónustu og nýtingu tæknilausna sem bæta aðgengi, skilvirkni og þjónustu við almenning.
Mikil samkeppni var um verðlaunin í ár og bárust fjölmargar sterkar tilnefningar. Að komast í hóp tilnefndra telst því í sjálfu sér mikil viðurkenning á því starfi og þeim árangri sem verkefnið hefur skilað.
Verkefnið snýr að notkun gervigreindar við skimun fyrir augnsjúkdómum tengdum sykursýki. Með þessari breytingu hefur aðgengi að mikilvægu heilbrigðiseftirliti aukist verulega og þjónustan orðið bæði hagkvæmari og fljótvirkari.
Verkefnið er jafnframt talið skýrt dæmi um hvernig gervigreind getur umbreytt opinberri þjónustu með því að draga úr hindrunum og færa hana nær fólki. Þar með skapast ný tækifæri til að bæta lífsgæði, nýta fjármuni betur og styrkja grunnþjónustu samfélagsins.
Að baki verkefninu stendur opinbert starfsfólk sem hefur sýnt frumkvæði og metnað til að þróa þjónustuna áfram. Slík vinna skiptir miklu máli, enda eru það starfsfólkið sjálft sem þekkir kerfin best og sér hvar hægt er að bæta ferla, auka skilvirkni og skapa meira virði fyrir samfélagið í heild. Tilnefningin er því ekki aðeins viðurkenning á árangri verkefnisins heldur einnig á mikilvægi nýsköpunar innan hins opinbera.