Sólmyrkvi og augun
7. ágúst 2026
Hvernig getur sólmyrkvinn skaðað augun?

Horfðu aldrei beint á sólina nema með viðurkenndum sólmyrkvagleraugum.
Venjuleg sólgleraugu verja ekki augun.
Hvernig getur sólmyrkvinn skaðað augun?
Sterkt sólarljós getur valdið tveimur mismunandi tegundum augnskaða:

🔶 Bruni í sjónhimnu (augnbotni)
Þetta er alvarlegasti skaðinn sem getur orðið við að horfa beint á sólina. Ljósið varpast á sjónhimnuna eins og með stækkunargleri og getur valdið bruna.
Helstu einkenni:
Þokusýn
Dökkur blettur í miðju sjónsviðs
Bjöguð sjón eða litabreytingar
Mikilvægt: Sjónhimnubruni veldur yfirleitt ekki verkjum, og einkenni geta komið fram nokkrum klukkustundum síðar.
Flestir ná einhverjum bata, en hjá sumum verður sjónskerðingin varanleg.
🔶 Bruni á hornhimnu
Hornhimnan er glæra lagið fremst á auganu. Bruni á hornhimnu er sjaldgæfur við sólmyrkva en getur gerst vegna sterkrar útfjólublárrar geislunar. Algengara t.d. eftir logsuðu eða við mikla endurkastgeislun frá snjó.
Helstu einkenni:
Mikill verkur eða sviði
Roði og tárarennsli
Ljósfælni
Sandkornatilfinning í auganu
Hornhimnubruni grær oftast á 1–3 dögum með viðeigandi meðferð.
Hvenær á að leita læknis?
Leitaðu tafarlaust til læknis eða augnlæknis ef þú:
sérð dökkan blett í miðju sjónsviðs,
finnur fyrir skyndilegri sjónskerðingu eða bjagaðri sjón eftir að hafa horft á sólina,
færð mikinn augnverk eða mikla ljósfælni.
Hvernig ver ég augun?
✔ Öruggt
Viðurkennd sólmyrkvagleraugu (ISO 12312-2)
Sérstakar sólarsíur fyrir sjónauka eða myndavélar
✘ Ekki öruggt
Venjuleg sólgleraugu
Reykt gler
Geisladiskar (CD/DVD)
Ljósmyndafilmur
Lituð plastblöð
Ef notaður er sjónauki, kíkir eða myndavél verður sólarsían að vera framan á linsunni. Sólmyrkvagleraugu ein og sér duga ekki.
Algengar spurningar
Má horfa á sólina í örfáar sekúndur?
Nei. Jafnvel stutt augnablik getur valdið skaða.
Finn ég strax ef sjónhimnan skemmist?
Ekki endilega. Sjónhimnubruni veldur oft engum verkjum og einkenni geta komið fram síðar.
Mega börn horfa á sólmyrkva?
Já, ef þau nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu og eru undir eftirliti fullorðinna.
Mundu
✅ Horfðu aldrei beint á sólina án viðurkenndra sólmyrkvagleraugna.
✅ Venjuleg sólgleraugu verja ekki augun.
✅ Sjónhimnubruni veldur yfirleitt ekki verkjum en getur valdið varanlegri sjónskerðingu.
✅ Ef sjón breytist eftir að hafa horft á sólina skaltu leita læknis.
Þjónusta HSS 12. ágúst
Heilsugæslan verður opin til kl 22, bráðamóttaka fyrir alvarleg veikindi og slys er opin allan sólarhringinn