Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Söfnun fyrir brjóstaskimunartæki

20. október 2026

Safnað er fyrir sérhæfðu röntgentæki fyrir skimanir gegn brjóstakrabbameini

Í bleikri messu í Keflavíkurkirkju 18. október hófst söfnun Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) fyrir kaupum á sérhæfðu röntgentæki fyrir skimanir gegn brjóstakrabbameini.

Að lokinni messu var boðið upp á veitingar í safnaðarheimilinu og kynntu velunnarar og fulltrúar líknarfélaga sig og sinn stuðning við söfnunina.

Markmið söfnunarinnar er að safna 50 milljónum til að standa straum að kaupum á tæki og uppsetningu þess.

Síða söfnunarinnar er á vef SAR - www.sar.is og söfnuninni lýkur á afsmælisdegi HSS 18. nóvember.

Þegar þessi frétt er skrifuð hefur 48,6% af markmiði söfnunarinnar þegar náðst.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Hafa samband

Aðalnúmer: 422 0500

hss@hss.is

Opnun­ar­tími

Allir opnunartímar

Slysa- og bráðamóttaka er
opin allan sólarhringinn


Heim­il­is­fang

Skólavegi 6
230 Reykjanesbæ

Kennitala: 511297-2819