Sérnám í bráðalækninum á HSS
5. mars 2026
Samstarf um sérnám í bráðalækninum á HSS
Þann 27. febrúar var sá ánægjulegi viðburður að Landspítali og HSS undirrituðu formlegt samstarf um sérnám í bráðalækningum. Báðar stofnanir skuldbinda sig til samhæfingar varðandi gæði náms og framkvæmd þess.
Það er gríðarlega mikilvægt fyrir þjónustu á bráðamóttöku á HSS að vera viðurkennd bráðamóttaka fyrir sérnám í bráðalækningum. Þessi áfangi er mikilvægt skref í vegferð HSS að verða viðurkennt kennslusjúkrahús en mikilvægt er að lyflækningar á HSS verði einnig viðurkenndar, en heilsugæsla HSS hefur um árabil verið viðurkenndur kennslustaður fyrir sérnám í heimilislækningum.
Sérnám í greinum innan læknisfræðinnar fer samkvæmt gildandi reglugerð nr. 856/2023 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Sérnám fer fram samkvæmt marklýsingu hverrar einstakrar greinar sem samþykktar hafa verið af mats- og hæfisnefnd, sem starfar á forræði heilbrigðisráðuneytisins.
Sérnámslæknar er stór og jafnframt vaxandi hluti af starfandi læknum landsins. Á undanförnum árum hefur mikil þróun átt sér stað í uppbyggingu sérnáms á Íslandi í samræmi við viðurkennda alþjóðlega staðla.
Til hamingju með þennan áfanga.