Nýr vefur HSS
30. september 2025
Vefur HSS flytur á island.is

Nýr vefur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja www.hss.is hefur verið gefinn út í vefumsjónarkerfi Stafræns Íslands.
Vefumsjónarkerfið gerir vefinn þægilegri í notkun á snjalltækjum og bíður upp aukna möguleika fyrir birtingu efnis á fleiri tungumálum.
Vefurinn er hnitmiðaður í uppsetningu og á að auðvelda fólki að nálgast þjónustu HSS hratt og örugglega.
Allar tillögur sem bætt geta vefinn og uppsetningu hans eru vel þegnar og má senda okkur í gegnum síðuna Ábending, Hrós, Kvörtun