Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Heilsugæsla í Vogum

13. janúar 2025

Heilsugæsla HSS í Vogum opnar fimmtudaginn 16. janúar. Opnunartími verður á þriðjudögum og fimmtudögum fyrir hádegi. Heilsugæslan er staðsett að Iðndal 2 í Vogum.

Til að byrja með er boðið uppá viðtalstíma hjá lækni og almenna hjúkrunarmóttöku.

Í almennri hjúkrunarmóttöku felst m.a. bólusetningar, sárameðferðir, eyrnaskol, sprautumeðferðir, blóðþrýstingseftirlit, almenn hjúkrunarráðgjöf, svo eitthvað sé nefnt.

Einnig er boðið uppá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi á þessum dögum.

ATH þessi þjónusta er í boði fyrir skjólstæðinga Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og er sérstaklega ætlað þeim skjólstæðingum sem búsettir eru í Vogum.

Hægt er að skrá sig á heilsugæslustöðina í Vogum á „mínar síður“ á sjukra.is, á heilsuvera.is eða á pappírsformi á heilsugæslunni.

Allar tímapantanir fara í gegnum 4220500

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Hafa samband

Aðalnúmer: 422 0500

hss@hss.is

Opnun­ar­tími

Allir opnunartímar

Slysa- og bráðamóttaka er
opin allan sólarhringinn


Heim­ils­fang

Skólavegi 6
230 Reykjanesbæ

Kennitala: 511297-2819