Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Heilsueflandi móttökur

13. mars 2026

Heilsueflandi móttaka barna

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur opnað heilsueflandi móttöku barna.

Móttakan styður við börn og fjölskyldur þeirra barna sem eru að bregða út af vaxtarkúrfu.

Móttakan sinnir börnum 6 til 18 ára og í samvinnu við ungbarnavernd þegar um yngri börn er að ræða.

Í móttökunni starfar þverfaglegt teymi sem samanstendur af hjúkrunarfræðingi, næringarfræðingi og lækni ásamt stuðningi frá sálfræðingum og sjúkraþjálfara. Unnið er náið með skólaheilsugæslu.

Verklag móttökunnar er samkvæmt alþjóðaleiðbeiningum varðandi meðferð við hraðri þyngdaraukningu barna og góð tengsl eru við Heilsuskólann á Landspítala og aðrar móttökur á landinu sem sinna slíkri meðferð.

Ef þú telur að þú eða þitt barn eigið heima í móttökunni þá er þér velkomið að hafa samband við Heilsueflandi móttöku barna á HSS (422-0500), panta símatíma og við hringjum til baka og saman tökum við stöðuna varðandi næstu skref.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Hafa samband

Aðalnúmer: 422 0500

hss@hss.is

Opnun­ar­tími

Allir opnunartímar

Slysa- og bráðamóttaka er
opin allan sólarhringinn


Heim­ils­fang

Skólavegi 6
230 Reykjanesbæ

Kennitala: 511297-2819