Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hlýtur Samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélagsins 2025

10. maí 2026

Samfélagsviðurkenning

Krabbameinsfélag Íslands hefur veitt Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Samfélagsviðurkenningu ársins 2025 fyrir framúrskarandi frumkvæði og árangursríkt samstarf við fyrirtæki á Suðurnesjum sem hefur leitt til verulega aukinnar þátttöku kvenna í brjóstaskimun á svæðinu.

Einnig hlutu Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) og Félag kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum sömu viðurkenningu fyrir mikilvægt framlag sitt til verkefnisins og öflugt samstarf í þágu forvarna og heilsueflingar í samfélaginu.

Markmið verkefnisins var að efla vitund um mikilvægi skimunar og auðvelda konum þátttöku. Með samstilltu átaki og öflugu samstarfi við atvinnulíf á Suðurnesjum tókst að ná til fleiri kvenna en áður og auka þátttöku með sýnilegum og jákvæðum árangri.

Viðurkenningin er veitt þeim sem með samfélagslegri ábyrgð og frumkvæði stuðla að bættri heilsu og aukinni vitund um mikilvægi forvarna. Með viðurkenningunni fylgir jafnframt hvatning til áframhaldandi góðra verka og enn betri árangurs í framtíðinni.

Brjóstaskimun skiptir máli og getur bjargað mannslífum. Með aukinni þátttöku í skimun eykst líkur á að krabbamein greinist á fyrri stigum, þegar meðferð er oft árangursríkari og horfur betri.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Hafa samband

Aðalnúmer: 422 0500

hss@hss.is

Opnun­ar­tími

Allir opnunartímar

Slysa- og bráðamóttaka er
opin allan sólarhringinn


Heim­ils­fang

Skólavegi 6
230 Reykjanesbæ

Kennitala: 511297-2819