Heilbrigðismál í brennidepli: Ráðherra og þingmenn í heimsókn á HSS
10. mars 2025
Nýafstaðin kjördæmvika var viðburðarík hjá HSS og fengu heilbrigðismál á Suðurnesjum verðskuldaða athygli ráðamanna.

Þann 26.febrúar tók HSS á móti heilbrigðisráðherra og þingmönnun Samfylkingarinnar og þann 28.febrúar heimsóttu þingmenn Viðreisnar stofnunina. Merkja mátti mikinn áhuga gestanna á starfsemi HSS sem og þróun heilbrigðismála í umdæminu og voru umræður líflegar.
Forstjóri kynnti stefnu HSS til ársins 2030, innleiðingu hennar og stefnuáherslur fyrir árið 2025.
Staða ýmissa mála var rædd en þar má sérstaklega nefna:
Þjónusta heimahjúkrunar
Heilsugæsluþjónusta
Heilsueflandi móttökur og sérstaklega umfang og gæði sykursýkismóttöku
Stórbætt þjónusta með tilkomu nýrrar slysa- og bráðamóttöku
Sálfélagsleg þjónusta
Árangur í rekstri og fjárhag stofnunarinnar 2024
Farið var yfir helstu áskoranir sem stofnunin stendur frammi fyrir og líflegt samtal var við gesti um útfærslu mögulegra lausna og stuðning.
Á Suðurnesjum eru um 31.000 íbúar og hefur þeim fjölgað ört undanfarin ár.