Breytingar á gjaldtöku í geðheilsuteymi
28. október 2026
Vegna nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðuneytisins um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu

Vegna nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðuneytisins um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, verða breytingar á gjaldtöku fyrir þjónustu í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þann 1. Nóvember 2026. Frá þeim degi verður innheimt komugjald, auk þess sem greiða þarf fyrir rannsóknir, námskeið og vottorð með sama hætti og hjá heilsugæslustöðvum.
Greiðsla fyrir hverja komu
Fyrir hverja komu til þessara teyma verður innheimt almennt komugjald. Gjaldið verður það sama og fyrir komu á heilsugæslustöð.
Komugjaldið verður 1.000 krónur fyrir hvert skipti.
Aldraðir, öryrkjar og fólk á endurhæfingarlífeyri eru undanþegnir og munu því ekki greiða komugjaldið.
Greiðsla fyrir rannsóknir
Greiða þarf rannsóknargjald fyrir sýni sem send eru á rannsóknarstofu. Gjaldið verður það sama og hjá heilsugæslustöðvum.
Almennt gjald verður 3.716 krónur.
Aldraðir, öryrkjar og fólk á endurhæfingarlífeyri greiða 2.477 krónur.
Greiðsla fyrir námskeið
Greiða þarf gjald fyrir þátttöku í námskeiðum hjá geðheilsuteymi.
Greitt er eftir fjölda skipta:
1 skipti - 5.377 krónur.
2-3 skipti - 10.754 krónur.
4-6 skipti - 17.206 krónur.
7-10 skipti - 23.658 krónur.
Aldraðir, öryrkjar og fólk á endurhæfingarlífeyri greiða sama gjald og aðrir.
Ekki er innheimt komugjald þegar komið er á námskeið.
Greiðsla fyrir vottorð
Greiða þarf fyrir vottorð hjá geðheilsuteyminu. Gjaldið verður það sama og hjá heilsugæslustöðvum. Upphæðin er mismunandi eftir tegund vottorða og má finna upplýsingar um kostnað við einstök vottorð í gjaldskrá.
Senda reikning í heimabanka
Gjöld hjá geðheilsuteymi verða innheimt með því að senda skjólstæðingum reikning í heimabanka.
Allar upplýsingar um kostnað við þjónustu hjá Heilsugæslu má finna í gjaldskrá.
Breytingar á gjaldtöku hjá geðheilsuteymum koma til vegna nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðuneytisins um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Þar var felld niður undanþága um gjaldskyldu sem áður gilti um geðheilsuteymi.