Bólusetning gegn árlegri inflúensu 2026
7. október 2026
Áhættuhópum sem eru skráðir á HSS er boðið upp á inflúensubólusetningu á eftirtöldum stöðum:

Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju að Kirkjuvegi
Athugið að gengið inn í rýmið að framan, frá Kirkjuvegi.
Mánudaginn 26. október frá kl. 9–12
Mánudaginn 16. nóvember frá kl. 9–12
Einstaklingar í forgangshópum fá SMS-boð á Heilsuveru. Athugið að ef búið er bóka þarf tíma á að halda þeirri tímasetningu.
Heilsugæsla í Vogum
Þriðjudaginn 27. október
– bókið tíma.
Þriðjudaginn 10. nóvember
– bókið tíma.
Heilsugæsla Suðurnesjabæjar
Miðvikudaginn 28. október
– bókið tíma.
Miðvikudaginn 4. nóvember
– bókið tíma.
Ungbarnavernd HSS
Börnum er boðið upp á inflúensubólusetningu í Ungbarnavernd valda daga. Bókið tíma.
Reykjanesapótek
Reykjanesapótek er í samstarfi við HSS og er að bólusetja við inflúensu alla virka daga eftir 2. nóvember.
Bókun
Hægt er að bóka tíma á Heilsuvera.is eða í síma 422-0500 á milli kl. 8–16.
Sótthvarnalæknir mælir til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar
Allir einstaklingar 60 ára og eldri (Influvac).
Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu (bóluefni í samræmi við aldur).
Öll börn sem búa við
langvinnan hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóm, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma. Meta þarf frábendingar Fluenz á einstaklingsgrundvelli og eftir atvikum má nota Influvac þess í stað.
Allir fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum (Influvac).
Barnshafandi (eingöngu Influvac jafnvel þótt hafi ekki náð 18 ára aldri).
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan (Influvac).
Fólk í stærri hópi vegna samsmitsáhættu inflúensu og fuglainflúensu, sbr. frétt í október 2023 (Influvac).
Kostnaður vegna inflúensubólusetninga fyrir forgangshópa
Bóluefni gegn inflúensu er forgangshópum að kostnaðarlausu.
Um komugjöld í heilsugæslu vegna inflúensubólusetningar gildir 8. gr. reglugerðar nr. 1495 frá 2025.
Kveðja, Heilsugæsla HSS