Bleik messa í Keflavíkurkirkju
16. október 2026
Sunnudaginn 18. október kl. 11 er bleik messa í Keflavíkurkirkju.

Í messunni hefst söfnun fyrir brjóstaskimunartæki sem verður staðsett á Suðurnesjum. Að messunni koma Rótarýklúbbur Keflavíkur, Krabbameinsfélag Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi - SAR.
Söfnunin fer fram á vefnum www.sar.is
Sr. Erla þjónar ásamt Unni messuþjóni og Rut, Helga, Grybos og Jón Ingi sjá um sunnudagaskólann. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng við meðleik og stjórn Arnórs organista.
Að messu lokinni verður boðið upp á súpu frá Skólamat, brauð frá Sigurjóni bakara og bleikt sætabrauð.
Verið hjartanlega velkomin til samveru og samstöðu!