Ársfundur HSS — uppbyggjandi og faglegt samtal við samfélagið
1. apríl 2026
Ársfundur HSS var haldinn föstudaginn 27. mars
Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) er árlegt tækifæri íbúa, samstarfsaðila og starfsfólks til að líta til baka, meta árangur og horfa fram á veginn. Fundurinn var vel sóttur.
Heilbrigðisráðherra ávarpaði fundinn og kjarnaði vel þau verkefni sem liggja fyrir og þann árangur sem hefur náðst á HSS á undanförnu ári. Ráðherra lagði sérstaka áherslu á þau verkefni sem fram undan eru í þjónustu við aldraða, aukna húsnæðisþörf og uppbyggingu húsnæðis HSS.
Forstjóri, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, gerði grein fyrir starfsemi ársins 2025, árangri og áskorunum.
Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrar, Kjartan Kjartansson, kynnti drög að ársreikningi og rekstrarniðurstöðu ársins.
Skólaheilsugæsla og rannsókn HSS voru heiðruð á fundinum fyrir umbætur á árinu sem aukið hafa þjónustu við samfélagið á Suðurnesjum.
Stofnunin þakkar það traust sem íbúar Suðurnesja hafa sýnt og komið hefur fram í niðurstöðum kannana. Með sameiginlegu átaki, mennsku og myndugleik að leiðarljósi munum við halda áfram að efla þjónustuna til hagsbóta fyrir skjólstæðinga, aðstandendur og samfélagið í heild.