Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Andrea Klara Hauksdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

29. maí 2026

Framkvæmdastjóri hjúkrunar á HSS

Andrea Klara Hauksdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Andrea Klara útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2009 og með meistarapróf í heilbrigðisvísindum með áherslu á stjórnun innan heilbrigðisþjónustu árið 2015.

Hún hefur starfað hjá HSS frá útskrift og gegnt þar fjölbreyttum störfum á sviði hjúkrunar og stjórnunar. Andrea Klara hefur meðal annars starfað sem hjúkrunardeildarstjóri skurð- og speglunardeildar, hjúkrunardeildarstjóri heilsugæslu og yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslusviðs. Síðasta eitt og hálfa árið hefur hún gegnt starfi framkvæmdastjóra hjúkrunar á HSS.

Auk starfa sinna hjá HSS starfaði Andrea Klara hjá Meltingarsetrinu ehf. sem speglunar-hjúkrunarfræðingur og hjá Centric Care í Osló á hjúkrunarheimilum.

Andrea Klara býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á rekstri og stjórnun heilbrigðisþjónustu og er ráðning hennar mikill styrkur fyrir HSS.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Hafa samband

Aðalnúmer: 422 0500

hss@hss.is

Opnun­ar­tími

Allir opnunartímar

Slysa- og bráðamóttaka er
opin allan sólarhringinn


Heim­ils­fang

Skólavegi 6
230 Reykjanesbæ

Kennitala: 511297-2819