Vísindarannsóknir hjá HH
Umsóknarferlið og afgreiðsla umsókna
Ferli innan einstakra starfsstöðva
Sé rannsókn bundin við eina starfsstöð og hefur fengið samþykki yfirmanns, skal hún aðeins tilkynnt til Vís-HH.
Rannsóknir sem ná til fleiri en einnar einingar HH skulu ávallt fara fyrir Vís-HH til umsagnar.
Umsóknarferlið og afgreiðsla umsókna
1. Umsókn:
Sækja skal um leyfi til Vísindasiðanefndar – vsn.is (ef við á) áður en umsókn er send til Vís-HH.
Umsókn, ásamt umsókn og leyfi vísindasiðanefndar og fylgigögnum skal senda á netfangið visindanefnd@heilsugaeslan.is.
Rannsókn má ekki hefjast fyrr en öll tilskilin leyfi liggja fyrir.
2. Umsögn Vís-HH:
Vís-HH veitir umsögn og leggur mat á siðferðileg og fagleg atriði.
Umsögnin getur verið:
Samþykkt / mælt með
Samþykkt með fyrirvara / athugasemdum
Hafnað
Umsögn er send til framkvæmdastjóra lækninga og hjúkrunar sem meta rekstrarlega þætti og staðfesta framkvæmd. Að því loknu sendirVís-HH formlegt svar til umsækjanda.
3. Eftir samþykki:
Ef breytingar verða á tímaáætlun rannsóknar þarf ný áætlun að hljóta samþykki Vís-HH.
Sé umsókn samþykkt með fyrirvara eða athugasemdum skal umsækjandi skila endurbættri áætlun innan tiltekins tíma – annars telst rannsókninni hætt.
Skilyrði og ábyrgð
Tilnefna skal tengilið innan HH sem er starfsmaður stofnunarinnar með viðeigandi háskólamenntun . Tengiliðurinn ber ábyrgð á framkvæmd rannsóknarinnar innan HH og tryggir að hún fari fram í samræmi við veitt leyfi.
Aðgangur að sjúkraskrám
• Aðgangur að gögnum úr sjúkraskrám er aðeins heimilaður að fengnu samþykki vörslumanns skrárinnar.
• Fótspor (notkunarskráning) skal skráð í Sögu, annaðhvort af gagnavinnsluaðila eða rannsakanda.
Miðlun niðurstaðna og lok rannsóknar
• Að rannsókn lokinni skal senda staðfestingu á lokum og helstu niðurstöður til Vís-HH.
• Ef greinar eru birtar í ritrýndum tímaritum skal afrit þeirra einnig sent nefndinni.
Umsóknareyðublað og fylgiskjöl
Við umsókn skal skila eftirfarandi gögnum:
Fyrirspurnir má senda á: visindanefnd@heilsugaeslan.is
