Ískrá er sérsniðið sjúkraskrárkerfi til notkunar við skráningu í heilsuvernd skólabarna. Markmið þess er að hafa samræmda skráningu í heilsuvernd skólabarna á landinu og ná út gagnlegum tölum. Ískrá er hönnuð og þróuð innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og hefur verið notuð í öllum skólum á svæði stofnunarinnar frá árinu 2003. Árið 2012 byrjuðu heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni að skrá í kerfið og voru þær allar endanlega komnar inn árið 2013.
Í Ískrá eru skráðar upplýsingar um nemendur, heilsufarsleg vandamál þeirra, samskipti þeirra og forráðamanna við starfsfólk í heilsuvernd skólabarna (HVSB), forvarnir og fræðslu sem starfsfólk HVSB lætur nemendum í té. Ískrá er einnig notuð til að halda utan um reglubundið eftirlit, fræðslu, forvarnir og skimanir sem starfsfólk HVSB sinnir í skólum.
Ískrá er aðlöguð að skólaumhverfinu og eru upplýsingar úr nemendaskrám skólanna keyrðar inn í Ískrá að hausti. Notandinn hefur góða yfirsýn yfir bekki og stöðu vinnunnar á hverjum tíma, ásamt því að hafa góða yfirsýn yfir einstaklinginn og aðstæður hans.