Vísindarannsóknir hjá HH
Umsóknir vegna vísindarannsókna
Rannsóknir sem fara fram innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) skulu lagðar fyrir Vísindanefnd Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (Vís-HH).
Nefndin fundar reglulega og tekur umsóknir til umfjöllunar í þeirri röð sem þær berast. Gera skal ráð fyrir að umsókn berist að minnsta kosti viku fyrir auglýstan fund.
Rannsóknir sem, vegna eðlis þeirra eða aðgangs að heilbrigðisgögnum, falla undir leyfisveitingu Vís-HH eru meðal annars:
Vísindarannsóknir á fólki
Gagnarannsóknir á fyrirliggjandi sjúkraskrám
Rannsóknir sem hafa að markmiði að skapa nýja þekkingu og/eða miðla niðurstöðum opinberlega (t.d. með birtingu í tímaritum eða á ráðstefnum)
Gæðaverkefni, sem almennt eru unnin af starfsfólki HH og miða að innri umbótum, falla ekki undir umfjöllun Vís-HH.
