Upplýsingamiðstöð
Efnisyfirlit
Þjónusta
Þjónusta
Þegar fólk ætlar að ferðast gæti það þurft á bólusetningu að halda. Gott er að huga að bólusetningum og leita ráða hjá starfsfólki heilsugæslunnar 2 til 3 mánuðum fyrir brottför.
Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar getur ráðlagt fólki hvort og þá hvaða bólusetningu það þarf þegar það fer til útlanda. Sótt er um ráðgjöf á netspjalli Heilsuveru.
Hægt er að hringja í Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar í síma 513 1700 fyrir nánari upplýsingar.
Ferðabólusetningar eru gerðar á öllum heilsugæslustöðvum. Á Heilsugæslunni Mjódd er opin bólusetningamiðstöð í Þönglabakka 1. Opið er alla virka daga frá 9 til 15 og tímabókanir eru óþarfar.
Meiri upplýsingar um bólusetningar vegna ferðalaga má finna á Heilsuveru: Bólusetningar ferðamanna.
Ferðabólusetningar fara fram á vegum Heilugæslunnar Mjódd, Þönglabakka 1 (2. hæð) alla virka daga frá 9 til 15.
Bóluefni | Staða |
|---|---|
Barnaveiki, kíghósti, stífkrampi og mænusótt | Nóg til |
Barnaveiki, kíghósti og stífkrampi | Nóg til |
Mænusótt | Nóg til |
Lifrarbólga A og B | Nóg til |
Lifrarbólga A | Nóg til |
Lifrarbólga B | Nóg til |
Taugaveiki | Nóg til |
Hundaæði | Nóg til |
Mýgulusótt (Yellow Fever) | Nóg til |
Japönsk heilabólga | Nóg til |
Blóðmauraheilabólga | Nóg til |
Heilahimnubólga, meningókokka A, C, W135 og Y | Lítið til |
Lungnabólga | Nóg til |
Staðan er uppfærð reglulega og er til viðmiðunar. Ekki er hægt að tryggja að öll efni séu til á hverjum tíma.
Síðast uppfært 22. janúar
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar í síma 1700 eða í gegnum netspjall.
Einstaklingar sem vilja hætta að nota tóbak geta fengið aðstoð hjá hjúkrunarfræðingum á Upplýsingamiðstöð .
í boði er ráðgjöf, stuðningur og eftirfylgd í símaviðtölum og rafrænum samskiptum.
Þau sem vilja aðstoð við að hætta tóbaksnotkun geta haft samband á netspjalli Heilsuveru eða í síma Upplýsingamiðstöðvarinnar, 513 1700.
Hægt er að lesa meira um tóbak og ráð til að hætta notkun þess á þekkingarvef Heilsuveru.
Forstöðumaður: Ingibjörg Rós Kjartansdóttir
Fagstjóri hjúkrunar: Matthildur Elín Víðisdóttir
Skrifstofustjóri: Hrafnhildur Arna Erlendsdóttir
