Heilsugæslan Miðbæ
Efnisyfirlit
Þjónusta
Heilsugæsluþjónusta
Það er allaf hægt að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi en símaviðtal við lækni þarf að panta.
Á mínum síðum Heilsuveru er auðvelt að eiga rafræn samskipti við þau sem sinna þér á stöðinni.
Þú getur fengið ráðgjöf vegna bráðra erinda á netspjalli Heilsuveru og allan sólarhringinn í síma 1700.
Heilsugæslustöðvar eru opnar virka daga á dagvinnutíma. Þar er tekið á móti fólki með bráð veikindi og eftir smærri slys.
Fyrsta skrefið er að hafa samband í síma 1700 eða á netspjallinu á Heilsuveru.
Þar leiðbeinir hjúkrunarfræðingur þér um næstu skref og veitir ráðgjöf. Ef þú þarft að koma á heilsugæslustöð færð þú tíma samdægurs eða daginn eftir.
Í áríðandi tilvikum er alltaf hægt að fá þjónustu á dagvinnutíma. Ef þinn heimilislæknirinn er ekki við sinnir annar læknir eða hjúkrunarfræðingur erindinu.
Sálfræðingar og félagsráðgjafar starfa sem hluti af þverfaglegum teymum og í náinni samvinnu við skóla og félagsþjónustu.
Sálfræðingar sinna ráðgjöf og meðferð barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra annars vegar og fullorðinna 18 ára og eldri hins vegar
Félagsráðgjafar aðstoða einstaklinga, pör eða fjölskyldur sem standa frammi fyrir vandamálum sem hafa áhrif á heilsu þeirra.
Þú getur haft hringt í heilsugæsluna þína til að athuga með tíma.
Það hjálpar einnig mörgum að sækja námskeið eða netmeðferð.
Lyfjum er ávísað í viðtali hjá lækni.
Hægt er að óska eftir endurnýjun fyrir sum lyf sem tekin eru að staðaldri og er ávísað af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum næsta virka dag en geta tekið lengri tíma.
Sýklalyf, sterk verkjalyf, róandi lyf og svefnlyf eru bara endurnýjuð í viðtali hjá lækni.
Ef þú hefur spurningar eða áhyggjur af lyfjunum þínum getur lyfjafræðingur heilsugæslunnar ráðlagt þér og yfirfarið lyfin þín
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun á Heilsuveru. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Upplýsingar um símanúmer og símatíma lyfjaendurnýjunar eru á síðunni Almennar upplýsingar á hverri heilsugæslu.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu er hægt að sækja um það á mínum síðum Heilsuveru.
Vegna lengri veikinda og annarra vottorða þarf að hafa samband við lækni.
Greiða þarf fyrir flest vottorð og verð þeirra má sjá í gjaldskrá.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar aðkomu sérgreinalækna lýkur senda þeir heimilislækni læknabréf til upplýsingar.
Heilsuvernd og önnur þjónusta
Meðgönguvernd er upphaf heilsuverndarþjónustunnar. Verðandi foreldrar geta farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Meðgönguvernd er ókeypis fyrir sjúkratryggða. Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu.
Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi skoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 7-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd stendur öllum börnum til boða og er ókeypis fyrir sjúkratryggða.
Foreldrum nýfæddra barna er boðið upp á heimavitjanir fyrstu vikurnar. Eftir það er þeim boðið að koma á heilsugæslustöðina með barnið í skoðanir.
Í heimavitjunum skoðar hjúkrunarfræðingur barnið, metur þroska þess, þyngd og höfuðummál. Foreldrar fá ráðgjöf og fræðslu varðandi umönnun barnsins og eigin líðan.
Þegar barnið er sex vikna gamalt er boðið upp á læknisskoðun á heilsugæslustöð. Við þriggja mánaða aldur hefjast bólusetningar.
Þú getur fengið allar algengar bólusetningar á þinni heilsugæslustöð.
Pantaðu tíma í móttöku hjá hjúkrunarfræðingi til fá bólusetningar.
Á mínum síðum Heilsuveru er yfirlit bólusetninga sem þú hefur fengið og þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á heilsugæslustöðinni þinni sem fer yfir þetta með þér og ráðleggur þér.
Börn eru bólusett í ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Þú getur lesið meira um bólusetningar í Heilsuveru.
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku í skimun fyrir krabbameini í leghálsi.
Ef það er komið að þér í skimun getur þú pantað tíma á mínum síðum Heilsuveru eða með símtali.
Ef tímaframboð á heilsugæslunni þinni hentar ekki getur þú pantað tíma með símtali á heilsugæslu að eigin vali eða komið í opið hús án tímapöntunar.
Í þjónustu fyrir fólk með langvinnan heilsuvanda er áhersla er lögð á þessa sjúkdóma:
Sykursýki af tegund 2
Ofþyngd/offitu
Langvinna lungnateppu
Hjarta- og æðasjúkdóma
Hækkaðan blóðþrýsting
Þjónustan fer eftir þörfum einstaklingsins en oft boðið upp á eitthvað af þessu:
Heilsufarsmat
Áætlun einstaklings
Eftirfylgd
Rannsóknir og skoðun
Lyf og lyfjarýni
Áhugahvetjandi samtal
Forvarnir
Þjónusta fyrir fólk með langvinnan heilsuvanda er oft í framhaldi af læknisviðtali. Einnig er hægt að bóka hana sérstaklega. Þú getur haft samband við heilsugæslustöðina þína ef þú vilt nýta þessa þjónustu.
Heilsuvernd eldra fólks miðar að því að styðja við andlega, líkamlega og félaglega heilsu svo fólk geti búið heima sem lengst.
Viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks er bókað með því að hringja í heilsugæsluna.
Hjúkrunarfræðingurinn:
Aðstoðar við að bæta og aðlagast breyttu heilsufari.
Leiðbeinir um hjálpartæki og stoðtæki.
Veitir ráð um þjónustu sem eru í boði.
Þau sem eru 70 ára og eldri eru hvött til að panta tíma hjá heimilislækni í almennt eftirlit.
Hjúkrunarfræðingar eru í grunn- og framhaldsskólunum. Þeir sjá um fræðslu, skimanir og bólusetningar.
Hjúkrunarfræðingarnir ráðleggja nemendum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki skólans.
Hægt er að fá samband við hjúkrunarfræðinginn í skólanum með því að hafa samband við skólann.
Hreyfiseðillinn er meðferð við sjúkdómi sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft áhrif á.
Sjúkraþjálfarar gera hreyfiáætlun miðað við sjúkdóm, hreyfigetu og áhugahvöt einstaklings.
Einstaklingurinn skráir hreyfingu sína rafrænt og sjúkraþjálfari fylgist með framvindu og gangi mála, veitir aðhald og hvatingu með símtölum og skilaboðum gegnum Heilsuveru.
Um Heilsugæsluna Miðbæ
Heilsugæslustöðvum er stýrt af forstöðumanni með aðstoð skrifstofustjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf.
Forstöðumaður og fagstjóri hjúkrunar: Hafdís Ólafsdóttir
Fagstjóri lækninga: Björg Þ. Magnúsdóttir
Skrifstofustjóri: Aðalbjörg Ósk Angantýsdóttir
Heilsugæslan Miðbæ þjónar einkum íbúum í póstnúmeri 101 vestan Snorrabrautar og norðan Hringbrautar.
Öllum er frjálst að skrá sig á stöðina óháð búsetu.
Þú getur skráð þig, skoðað og breytt skráningu á heilsugæslustöð á Heilsuveru og island.is.
