Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Efnisyfirlit
Þjónusta
Beiðni (umsókn) um heimahjúkrun verður að berast skriflega frá starfsfólki í heilbrigðis- eða félagsþjónustu.
Heilsugæslustöðvar og Landspítali nota beiðni (umsókn) um heimahjúkrun í Sögu og senda hana rafrænt.
Mikilvægt er að tilgreina tilefni umsóknarinnar, sjúkdómsgreiningar og heilsufarsvanda umsækjanda. Óskað er eftir að hjúkrunar- og/eða læknabréf fylgi umsókn.
Ef unnt er að verða við beiðninni kemur hjúkrunarfræðingur í vitjun, metur hjúkrunarþörf og skipuleggur þjónustuna í samvinnu við einstaklinginn, fjölskyldu hans og aðrar heilbrigðisstéttir
Áhersla er lögð á að meta hvort og hvernig heimahjúkrun mun bæta / styðja við heilbrigði einstaklingsins og fjölskyldu hans.
Heimahjúkrun er fyrir einstaklinga sem þurfa heilbrigðisþjónustu í heimahúsi. Hún felur í sér einstaklingsmiðaða hjúkrun sem byggir á mati á þörfum hvers og eins. Hjúkrunarfræðingur eða iðjuþjálfi skipuleggur þjónustuna í samvinnu við einstakling og aðstandendur.
Heimahjúkrun veitir ekki fasta viðveru eða yfirsetu á heimilum einstaklinga.
Heimahjúkrun er veitt án endurgjalds.
Stöðugt endurmat er á þjónustuþörf heimahjúkrunar.
Þegar einstaklingur þarf ekki heimahjúkrun lengur hefst undirbúningur útskriftar í samráði við einstakling og aðstandendur. Í sumum tilfellum hefur einstaklingur náð sjálfsbjargargetu aftur eða þarfnast annarra úrræða en heimahjúkrunar.
Útskrift úr heimahjúkrun er unnin í samvinnu við einstakling, aðstandendur og aðrar stofnanir.
Heimili skjólstæðings er vinnustaður starfsmanna og tryggja þarf aðbúnað og öryggi starfsmanna.
Skjólstæðingur eða umbjóðandi hans þarf að fallast á að aðstæðum á heimili sé fullnægt og undirrita samþykkisyfirlýsingu.
Skapist aðstæður inni á heimili að öryggi skjólstæðingsins eða starfsfólks Heimahjúkrunar sé ógnað, t.d. vegna óreglu eða ofbeldis, eru tafarlaust gerðar viðeigandi ráðstafanir.
Fresta getur þurft hjúkrunarþjónustu á meðan leitað er eftir viðeigandi ráðgjöf og aðstoð.
Markmið Heimahjúkrunar er að veita einstaklingnum viðeigandi aðstoð til að auka sjálfsbjargargetu sína og gera honum kleift að dveljast heima við sem eðlilegastar og bestar aðstæður eins lengi og unnt er miðað við heilsufar og félagslegan aðbúnað.
Hlutverk Heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er höfð að leiðarljósi.
Forstöðumaður: Hildur Sigurjónsdóttir
