Heilsugæslan Fjörður
Efnisyfirlit
Almennar upplýsingar
Húsnæði Heilsugæslunnar Fjarðar verður lokað tímabundið vegna endurnýjunar lyftu frá 8. apríl 2026. Starfsfólk stöðvarinnar mun veita skjólstæðingum þjónustu á þremur starfsstöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á meðan framkvæmdum stendur. Við biðjumst afsökunar á raskinu og óþægindum sem þetta veldur.
Þjónusta stöðvarinnar verður veitt á þremur stöðum þar til við opnum aftur í Firði:
Meðgönguvernd og ung- og smábarnavernd verður staðsett í Heilsugæslunni Sólvangi, Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði (sjá kort).
Þjónusta sálfræðinga verður veitt í Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sjá kort).
Öll önnur heilsugæsluþjónusta verður veitt í Heilsugæslunni Efra-Breiðholti, Hraunbergi 6, 111 Reykjavík (sjá kort) milli klukkan 8 og 16 alla virka daga.
Heilsugæslan Fjörður er staðsett á Fjarðargötu 13-15, 220 Hafnarfirði (sjá kort).
Símanúmer: 513 5400
Opið virka daga frá 8 til 17
Tímabókanir
Hægt er að bóka tíma með því að hringja á stöðina í síma 513 5400
Ráðgjöf vegna bráðra erinda
Í síma 1700 allan sólarhringinn
Þú getur skráð þig, skoðað og breytt skráningu á heilsugæslustöð á Heilsuveru og Ísland.is.

