Gjöld fyrir rannsóknir á heilsugæslustöðvum
Þegar rannsókn er gerð á heilsugæslustöð eða sýni sent á rannsóknarstofu þarf að innheimta rannsóknargjald.
Lista yfir gjaldskyldar rannsóknir og kostnað við þær má finna í gjaldskrá.
Reikningur fyrir rannsóknargjöldum er gerður á sama tíma og beiðni um rannsókn. Reikningur sendur í heimabanka skjólstæðings. Nokkrar vikur geta liðið þangað til reikningur birtist í heimabanka.
Mögulegt er að greiða á staðnum í stað þess að fá reikning í heimabanka ef skjólstæðingur er ekki með heimabanka eða kýs frekar að greiða á staðnum.
Ef áformuð rannsókn er ekki framkvæmd er reikningur bakfærður og endurgreiddur.
Innheimta rannsóknagjalda og annarra gjalda fer fram á grundvelli reglugerða um greiðsluþátttöku í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.
