Hlutverk
FSRE mótar, rekur og þróar aðstöðu ríkisins þannig að opinber þjónusta sé veitt við bestu aðstæður.
Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins (≈530 þús. m² í ~350 eignum og rúmlega 300 jarðir). FSRE sér meðal annars um
Húsnæðisöflun
Leigu
Framkvæmdir og endurbætur
Ráðgjöf um opinberar framkvæmdir utan eigin safns
Umsýslu jarða og lóða
Áhersla er lögð á ábyrga, sjálfbæra nýtingu og aðlögun að stafrænum þjónustuþörfum.