Gjaldskrá FSRE
Gjaldskrá fyrir þjónustu FSRE. Gildir fyrir 2026.
1. grein
Ráðgjöf sem FSRE veitir í verkefnum sem er áætluð umfram 2 m.kr. skal byggja á skriflegum samningum. Slíkur samningur skal byggja á skilgreindri þjónustu á föstu verði eða áætlun með nánari mati á umfangi verkefnis.
2. grein
Tímagjald fyrir útselda vinnu starfsmanna FSRE fyrir árið 2026 er sem hér segir:
Sérfræðingar | 22.510 kr./klst. án vsk |
Verkefnastjórar | 24.536 kr./klst. án vsk |
Virðisaukaskattur leggst ekki á tímagjaldið þar sem FSRE er A-hluta stofnun.
3. grein
Veltutengd grunnþóknun skal vera 0,4% af veltu hverrar framkvæmdar sem FSRE hefur umsjón með.
4. grein
Gjöld vegna skilamata, skilagreina og skilablaða eru sem hér segir:
Skilamat | 565.433 kr. án vsk. |
Skilagrein | 314.007 kr. án vsk. |
Skilablað | 126.262 kr. án vsk. |
5. grein
Gjöld vegna fasteignasölu eru sem hér segir.
Söluverð fasteignar:
1-104.000.000 | 1,95% | Lágmarksþóknun 364.000 kr |
104.000.001-416.000.000 | 1,6% | |
416.000.001 og yfir | 1,2% | Hámarksþóknun 10.400.000 kr |
6. grein
Við áframleigu húsnæðis í miðlægri umsýslu er FSRE fyrir hönd Ríkiseigna heimilt að leggja umsýslugjald sem nemur 2% ofan á grunnleigu. Umsýslugjaldið er ætlað að standa undir kostnaði Ríkiseigna við miðlæga umsýslu, áframleigu og stjórnsýslu húsnæðis og telst ekki hluti af grunnleigu.
7. grein
Virðisaukaskattur leggst hvorki á gjöld né þóknanir þar sem FSRE er A1-hluta stofnun.
8. grein
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt 22. grein laga nr. 84/2001 um skipan opinberra framkvæmda.