Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Netöryggisráðstefna CERT-IS og HVIN 2023

31. október 2023

13:15 til 16:30

Grand Hótel Reykjavík - Gullteigur

Cert_is og Hvin ráðstefna _ Flyer

Í tilefni alþjóðlegs netöryggismánaðar efna CERT-IS og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið til ráðstefnu um gagnagíslatökur, þróun þeirra og áhrif á rekstur fyrirtækja og stofnana.

Ráðstefnan er sérstaklega ætluð fólki með ábyrgð á rekstri og fjármunum fyrirtækja og stofnana.

Dagskrá:

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra netöryggismála, setur ráðstefnuna. CERT-IS fer yfir sögu gagnagíslataka og hvernig slíkar árásir hafa breyst í gegnum tíðina.

Brimborg og Geislatækni munu fjalla um reynslu sína af gagnagíslatökum og hvaða afleiðingar þau atvik höfðu í för með sér.

Einnig verður fjallað um samstarfsvettvang fræðslu, menntunar og rannsókna á sviði netöryggis á Íslandi.

Ráðstefnan fer fram í Gullteig á Grand Hótel þann 31. október frá 13:00 til 16:30 og boðið verður upp á léttar veitingar að henni lokinni.