Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Haustfundur Eyvör NCC-IS 2025

11. september 2025

08:30 til 12:30

Gróska

eyvör 2025 flyer

Eyvör NCC-IS, hæfnissetur í netöryggi, stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni: Netöryggi: Styrkir og sóknarfæri.
Markmiðið er að kynna helstu styrkjamöguleika á sviði netöryggis, hvetja til þátttöku í evrópskum verkefnum og sýna fram á hvernig rannsóknir og nýsköpun geta skilað raunverulegum ávinningi fyrir Ísland.

Eyvör NCC-IS er íslenska hæfnissetrið fyrir netöryggi og nýsköpun og hlutverk þess er að styðja við uppbyggingu á sviði netöryggis á Íslandi í samstarfi við hæfnissetur Evrópu í netöryggi (ECCC).

Dagskrá / Agenda

08:30 – Skráning og kaffi
09:00 – Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu setur fundinn
09:10 – Ávarp – Hr. Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra
09:20 – Luca Tagliaretti, framkvæmdastjóri ECCC
09:50 – Theodór Gíslason hjá Defend Iceland kynnir árangur af verkefninu
10:00 – Hlé og hressing
10:10 – Kynning á styrktarverkefnum, fyrri hluti
11:00 – Hlé og hressing
11:20 – Kynning á styrktarverkefnum, seinni hluti
12:05 – Eyjólfur Eyfells hjá Rannís kynnir umsóknarferli og hæfniskröfur

Fundarstjóri er Hrannar Ásgrímsson, verkefnastjóri Eyvarar NCC-IS.