Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Truflanir og tilkynningar

Truflanir í fjarskiptum geta valdið slæmu tali, rofnum símtölum, hægu neti eða því að samband detti út. Þær geta haft áhrif á einn notanda eða heilu hverfin. Fjarskiptastofa vaktar truflanir og bregst við þegar notendur eða fyrirtæki upplifa vandamál í sambandi.

Hvað veldur truflunum?

Algengustu ástæður eru:

  • Ólöglegur eða rangstilltur búnaður, t.d. endurvarpar eða ómerkt þráðlaus tæki

  • Gömul örbylgjuloftnet sem voru áður notuð fyrir Fjölvarpið og eru enn tengd rafmagni

  • Bilun í búnaði, t.d. loftnetum eða sendum

  • Meðhöndlun á röngum tíðnum eða of sterkt sendiafl

Hvernig veit ég hvort um truflun sé að ræða?

Þú gætir verið að lenda í truflun ef:

  • samband dettur út á mörgum tækjum

  • símtöl slitna þrátt fyrir góða þekju

  • merki sveiflast óeðlilega

  • nágrannar upplifa sama vandamál

Hvað get ég gert?

  1. Athuga búnaðinn – endurræstu tæki, athugaðu stillingar, prófaðu WiFi-símtöl.

  2. Prófaðu á öðrum stað – veldu annan glugga, utandyra eða annan herbergi.

  3. Hafðu samband við fjarskiptafyrirtækið þitt – það getur staðfest bilanir eða stillingarvandamál.

Sendu ábendingu til Fjarskiptastofu ef grunur er um truflun sem ekki tengist þínum búnaði. Við getum rannsakað málið og gripið til aðgerða.

Sendu inn ábendingu til Fjarskiptastofu

Ef þig grunar truflun:

Kvörtun vegna truflana í útvarpi og sjónvarpi o.fl.

Við bregðumst við eins fljótt og auðið er og sendum starfsmenn á vettvang ef þörf er.

Hvað gerist eftir tilkynningu?

  1. Fjarskiptastofa metur hvort um hugsanlega truflun sé að ræða

  2. Ef viðkomandi svæði er undir áhrifum sendum við sérfræðinga á vettvang

  3. Búnaður eða heimildir gerðar óvirkar ef þær halda ekki reglum

  4. Við vinnum með símafyrirtækjum til að leysa málið

  5. Þú færð upplýsingar ef frekari gögn eða mælingar eru nauðsynleg

Stundum þarf að fjarlægja búnað sem notandi á – sérstaklega ef um úrelt eða ólöglegt loftnet eða sendi er að ræða.