Tíðniheimildir
Tíðnir eru takmörkuð auðlind og grunnforsenda þess að farnet, útvarp, gervihnattatækni og önnur þráðlaus samskipti virki örugglega og truflunarlaust. Fjarskiptastofa ber ábyrgð á skipulagi og úthlutun tíðna á Íslandi og tryggir að notkun þeirra sé í samræmi við lög, reglur og alþjóðlegt samstarf.
Fyrirtæki og aðrir rekstraraðilar sem nota þráðlausan búnað eða starfrækja kerfi sem byggja á radíótækni þurfa í flestum tilvikum að sækja um tíðniheimild.
