Skipa- og flugfjarskipti
Örugg og áreiðanleg fjarskipti á hafi og í lofti eru mikilvæg fyrir samskipti, upplýsingamiðlun og öryggi. Því þarf fjarskiptabúnaður skipa og flugvéla að standast innlendar og alþjóðlegar kröfur.
Skipafjarskipti
Skipafjarskipti eru mikilvægur hluti af öryggi og rekstri á hafi. Til að tryggja örugg samskipti þurfa sjóför að vera búin réttum fjarskiptabúnaði, fylgja alþjóðlegum reglum og standast reglubundið eftirlit.
Fjarskiptastofa sinnir umsýslu og hefur eftirlit með skipafjarskiptum á Íslandi og fer með yfirumsjón með framkvæmd skoðunar á fjarskiptabúnaði og gefur út leyfisbréf til notkunar fjarskiptatækja.
Kröfur um fjarskiptabúnað skipa ráðast af því hafsvæði sem skipið hefur heimild til að sigla á:
Hafsvæði A1: Takmarkast af langdrægi strandstöðvar til talfjarskipta og viðvarana með stafrænu valkalli (DSC) á metrabylgju (VHF).
Hafsvæði A2: Svæði utan við hafsvæði A1, sem takmarkast af langdrægi strandstöðvar til talfjarskipta og viðvarana með stafrænu valkalli (DSC) á millibylgju (MF).
Hafsvæði A3: Svæði að utan hafsvæða A1 og A2 sem takmarkast af langdrægni samþykktrar GMDSS gervihnattaþjónustu (RMSS) sem skipajarðstöð (SES) skipsins styður og hefur stöðuga tilkynningaskyldu.
Hafsvæði A4: Svæði utan hafsvæða A1, A2 og A3.
Skoðun fjarskiptabúnaðar og útgáfa öryggisvottorða
Fjarskiptabúnaður um borð skipa þarfnast úttektar og skoðunar árlega. Í öllum tilfellum fylla skoðunarmenn út skoðunarskýrslur.
Fjarskiptastofa sinnir skoðunum á fjarskiptabúnaði í öllum fiskiskipum lengri en 24 og einnig öðrum fiskiskipum sem sigla út fyrir hafsvæði A1. Í kjölfar skoðunar gefur Samgöngustofa út öryggisvottorð fyrir þessi skip.
Faggildar skoðunarstofur skoða fjarskiptabúnað í bátum og skipum sem eingöngu sigla á hafsvæði A1. Skoðunarstofurnar senda skoðunarskýrslur til Fjarskiptastofu sem gefur út öryggisvottorð fyrir viðkomandi skip.
Skoðanir á farþegaskipum, flutningsskipum og öðrum skipum eru framkvæmdar af Fjarskiptastofu. Á grundvelli skoðunarskýrslu gefur stofnunin út öryggisvottorð fyrir þessi skip.
Tilgangur eftirlits með fjarskiptabúnaði í skipum er fyrst og fremst að tryggja að búnaðurinn sé í lagi þannig að hann geti nýst sem öryggisbúnaður. Eftirlitið er hluti af heildareftirliti með bátum og skipum sem heyrir undir Samgöngustofu og er grundvöllur fyrir því að skip fái haffærisskírteini. Eftirlitskerfið er lagskipt:
Leyfisbréf gefið út af fjarskiptaeftirlitsstofnun viðkomandi lands (Fjarskiptastofa í tilfelli Íslands) til að votta að skip megi nota upptalin búnað á alþjóðlegum tíðnum. Leyfisbréf er hluti af nauðsynlegum skjölum um borð í skipum og því skoðað við eftirlit. Nýtt Leyfisbréf er gefið út ef breytingar verða á fjarskiptabúnaði skipsins eða ef um nafnbreytingu, eigandaskipti (breyting á útgerðaraðila), flutning eða breytingu á umdæmisnúmeri.
Þegar skoðunarstofur framkvæma eftirlit um borð í skipi þá verður til skoðunarskýrsla sem er skrá yfir niðurstöður skoðunar. Skoðanir eru skráðar rafrænt í Skútuna hjá Samgöngustofu.
Öryggisvottorð er síðan gefið út af Fjarskiptastofu ef allar nauðsynlegar skoðanir hafa verið gerðar án áfellisdóma (fyrir utan mat 3).
Þegar öll nauðsynleg öryggisvottorð liggja fyrir varðandi allan búnað skips þá gefur Samgöngustofa út tímabundið öryggisskírteini (haffæri).
Kröfur um fjarskiptabúnað skipa
Hlekkir á umsóknir:
Umsókn um MMSI og IMN númer fyrir skip
Umsókn um MMSI fyrir AIS netbaujur
Flugfjarskipti
Um fjarskipti við flugvélar og fjarskiptabúnað um borð í þeim gilda sérstakar reglur.
Leyfisbréf fyrir fjarskiptabúnað
Fyrir fjarskiptabúnað um borð í öllum flugvélum skal vera leyfisbréf, útgefið af Fjarskiptastofu.
Umsókn um leyfisbréf fyrir tækjabúnað í flugvél
Þeir sem annast fjarskipti um borð í flugvélum verða að hafa til þess tilskilin réttindi.
