Reikireglur (innan EES og utan)
Þegar þú ferðast erlendis geta tengingar og gjaldskrá farsímans breyst. Þótt reglurnar geti virst flóknar er hér farið yfir lykilatriði sem auðvelda þér að átta þig á notkun farsímaþjónustu erlendis, hvort sem þú ert á ferðalagi innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eða utan þess.
Reiki (roaming) þýðir að farsíminn þinn notar net annars fjarskiptafyrirtækis í því landi sem þú ert í. Þetta gerist sjálfkrafa – þú þarft ekkert að gera.
Þegar þú ferð út fyrir Ísland fer síminn í “reikiham” og tengist fyrsta tiltæka neti sem þjónustuveitandi þinn er með samning við.
Það getur haft áhrif á:
verð á símtölum
kostnað vegna gagnanotkunar
SMS gjöld
þjónustu eins og talhólf
styrk og gæði sambands
Ef þú ferðast innan EES (til dæmis Danmörk, Spánn, Ítalía eða Þýskaland) eða Bretlands gilda sömu kjör og á Íslandi. Þetta á við um:
Símtöl
SMS
Gagnanotkun
Það þýðir að þú greiðir það sama og ef þú værir á Íslandi.
Fjarskiptafyrirtæki mega setja sanngjarnt hámark á hversu mikið gagnamagn þú notar í reiki, en þau þurfa að fylgja ákveðnum reglum. Mörkin byggja yfirleitt á verði áskriftarinnar þinnar. Þetta þýðir að:
Þú færð tilkynningu þegar þú nálgast gagnamörkin.
Ef farið er yfir gagnamörkin getur aukakostnaður bæst við. Hámarksverð er þó takmarkað.
Fyrir flesta notendur dugar þetta vel fyrir venjulega netnotkun
Ef þú dvelur meira en helming tímans erlendis yfir 4 mánaða tímabil geta reikigjöld bæst við, ferðadagar telja þó ekki.
Öll símtöl sem gerð eru meðan á dvöl erlendis stendur teljast til reiki. Eins þau símtöl sem viðkomandi tekur á móti.
Ef þú ferðast utan EES gilda ekki “reikað sem heima” reglurnar.
Þar getur kostnaður verið:
hærri
mismunandi milli landa
háður því hvaða net þú tengist
Bandaríkin
Kanada
Tyrkland
Tæland
Japan
Ástralía
Gott að hafa í huga
Þú borgar aðeins fyrir það reiki sem þú notar
Kostnaðurinn getur þó orðið mun hærri en heima, sérstaklega fyrir gagnanotkun
Kostnaður við farsímanotkun erlendis fer eftir því hvar þú ert og hvað þú notar. Mikilvægt er að hafa samband við þjónustuaðila fyrir það land sem verið er að fara til
1. Símtöl
Breytilegt eftir landi og farsíma fyrirtæki
2. SMS
Ódýrt innan EES
Getur verið dýrara utan EES
3. Gagnanotkun
Gagnanotkun er oft það sem hækkar símareikning mest utan EES
Þetta gerist sérstaklega ef ekki er slökkt á gagnanotkun í snjallsímanum
Kostnaður getur hækkað ef síminn:
uppfærir forrit í bakgrunni
er notaður í streymi, til dæmis YouTube, Spotify eða TikTok
er notaður í myndsímtöl
tengist snjalltækjum, svo sem úri, bíl eða öðrum búnaði
sækir myndir, skjöl og tölvupósta sjálfkrafa
tengist dýrara neti, þótt ódýrara net sé í boði í sama landi
Slökktu á reiki utan EES
Ef þú ferðast utan EES er gott að slökkva á gagnanotkun (mobile data) í símanum. Mörg tæki gera þetta sjálfkrafa, en best er að athuga stillingarnar áður en þú notar netið.Kauptu gagnapakka fyrir útlönd
Flest fjarskiptafyrirtæki bjóða sérstaka gagnapakka fyrir vinsæl ferðalönd. Slíkir pakkar eru oft mun ódýrari en að nota reiki án pakka.Notkun á þráðlausu neti í gegnum WiFi getur verið óöruggt
WiFi er oft ókeypis eða ódýrt og getur sparað mikinn kostnað, hinsvegar getur það verið óöruggt. Athugið að opin gjaldfrjáls WiFi geta verið mjög óörugg og mikilvægt að sýna varfærni þegar þau eru notuð.Hafðu samband við þjónustuaðilann þinn áður en þú ferð
Gott er að hafa samband við fjarskiptafyrirtækið þitt áður en þú ferð í ferðalag.
Þau geta sagt þér:
hvaða lönd eru dýrari í notkun
hvað er innifalið í þinni áskrift
hvar varað er við mjög háum gjöldum
Reiki í skipum og flugvélum fer oft í gegnum gervihnött en ekki í gegnum farnet í landi.
Þess vegna er það:
ekki hluti af EES-reglum
oft mun dýrari
sérstaklega mikilvægt að slökkva á reiki
Best er að slökkva á reiki:
áður en flugvél fer í loftið
áður en skip fer úr höfn
Yfirleitt sérðu eitt eða fleiri af eftirfarandi:
annað netheiti (t.d. Orange, Vodafone UK, TIM, AT&T)
táknið R við hlið netsins í símanum
skilaboð frá fjarskiptafyrirtækinu þínu um gjaldskrá og reglur
Í hnotskurn
Innan EES: sama verð og heima
Utan EES: verðið getur verið mun hærra
Gagnanotkun utan EES getur orðið mjög dýr
WiFi og gagnapakkar eru bestu lausnirnar
Varastu reiki í flugi og sjóferðum
Hafðu samband við þjónustuaðila áður en þú ferð
